Hlý kveðja til okkar frábæra samstarfsfólks

Í lok þessa viðburðaríka skólaárs kvöddum við dásamlegt starfsfólk sem ákvað að breyta til og verða ekki með okkur á næstu misserum – að sinni að minnsta kosti, eins og við viljum gjarnan segja. Til að fagna þeim dýrmætu stundum sem við áttum saman og sýna þakklæti okkar í verki, söfnuðumst við saman í glæsilega og stóra kökuveislu. Boðið var öllu því flotta fólki sem kvaddi okkur á liðnu skólaári.

Því miður komust ekki allir í veisluna en við hugsuðum til þeirra allra með mikilli hlýju, söknuði og vinsemd. Við færum okkar bestu þakkir og óskum þeim Katrínu Gróu, Óskari Ágústi, Stellu Rut, Guðrúni Ásgeirs, Viktoríu Gils, Sunnu Björgu, Heiðu Elísabet, Lindu Maríu, Þórði, Jóhönnu, Anítu og Stebbu Freysteins innilega velfarnaðar í öllum þeim spennandi verkefnum sem þau taka sér fyrir hendur. Fyrr í vetur kvöddum við einnig Dæju og Stebbu Huld.

Allur þessi frábæri hópur er ávallt hjartanlega velkominn til okkar í spjall og kaffisopa – eða jafnvel aftur í vinnu!

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 6. október 2026
Skemmtilegar og viðburðaríkar vikur að baki
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 15. september 2026
Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir er viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem sýnt er þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning í verki. Mættu nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands á SÚN völlin. Skiptu sér upp í lið og hlupu þvert á völlinn með kefli fram og til baka í boðhlaupi. Var hlaupið í dágóða stund áður en við tókum höndum saman og mynduðum hjarta á miðjum vellinum. Það var hann Hlynur Sveinsson sem tók myndina af hjartanu og klippti saman myndband af viðburðinum. Þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag í þetta sameiginlega verkefni ásamt öllum þeim sem komu að verkefninu að einhverju leiti. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrkleikana á heimasíðu krabbameinsfélagsins hér. Þeir sem vilja styrkja Styrkleikana er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Styrktarreikningur: Kt. 551001-3340 Rkn. 0166-26-201
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 11. september 2026
Þessi skólavika er búin að vera stútfull af viðburðum. Í vikunni tókum við upp læsir appið til að halda utan um lestur nemenda. Það ættu allir bekkir að vera komnir með bekkjarkóða til að skrá sig inn. Ef ekki þá mælum við með því að fá bekkjarkóða hjá umsjónarkennara barnanna ykkar. Við fórum í göngu á miðvikudaginn. Yngsta stig gekk uppfyrir keilur og inn að minnisvarða, gengu svo neðan við garða til baka. Miðstig gekk upp að Hólatjörnum þar sem nokkrir krakkar skelltu sér í vötnin og áttu góðan tíma saman. Unglingastig gekk svo upp í Bagalsbotna. Veðrið lék við okkur og allir áttu frábæran dag. Krakkarnir voru allir ekkert smá duglegir.