Viðburðarík og glæsileg vorönn að baki í Nesskóla
Vorönnin í Nesskóla var einstaklega litrík, lærdómsrík og iðandi af lífi. Þegar horft er til baka yfir liðna mánuði má með sanni segja að starfið hafi verið gríðarlega viðburðaríkt og að nóg hafi verið um að vera á hverjum einasta degi hjá nemendum og starfsfólki. Skólastarfið einkenndist af sköpunargleði, samstarfi, útivist og miklum samfélagsanda þar sem allir lögðu sitt af mörkum til að gera þessa önn ógleymanlega.

Hápunktar annarinnar voru margir og fjölbreyttir. Þar á meðal voru tvær glæsilegar og metnaðarfullar árshátíðir sem vöktu verðskuldaða athygli og lukku á meðal gesta. Á árshátíð yngsta stigs sýndu yngri nemendurnir okkar söngleikinn um Konung ljónanna. Krakkarnir fluttu sýninguna af ótrúlegu öryggi og leikgleði sem smitaði út frá sér til allra í salnum. Miðstigið bauð sömuleiðis upp á frábæra skemmtun á sinni árshátíð þar sem stuttir leikþættir, spennandi tilraunir, fallegur söngur og mikil gleði réðu ríkjum. Auk þessara stóru sýninga fór fram hið árlega skólaþing þar sem raddir nemenda og foreldra fengu að hljóma, nokkru síðar var svo Strumpaþing þar sem yngstu nemendurnir fengu rödd með aðstoð frá 10. bekk. Hin sívinsæla Góugleði á unglingastigi vakti mikla kátínu á meðal unglinganna og lukkaðist mjög vel.

10. bekkur sýndi lokaverkefni sín með miklum glæsibrag fyrir gesti og gangandi. Lokaverkefni 10. bekkjar er einn mikilvægur partur af skólastarfniu þar sem nemendur fá tækifæri til að skapa og þróa sínar hugmyndir frá grunni.

Nesskóli átti sömuleiðis frábæra fulltrúa þegar stóru upplestrarkeppnin fór fram. Í árlegu upplestrarkeppni 7. bekkjar í Fjarðabyggð sýndu okkar nemendur framúrskarandi árangur og uppskáru ríkulega fyrir vinnu sína. Hún Emma Sólveig Loftsdóttir landaði glæsilegu 2. sæti í keppninni og Rökkvi Halldórsson fylgdi fast á eftir í 3. sæti. Til viðbótar við þennan glæsilega árangur hlaut Hulda Höskuldsdóttir sérstaka viðurkenningu fyrir sérlega næma og flotta túlkun sína á ljóðum. Nesskóla fylgdu einnig þrír öflugir varamenn sem sýndu mikinn stuðning og fluttu ljóð sín af miklum glæsileik fyrir gesti á meðan dómnefndin dró sig í hlé til að fara yfir niðurstöður sínar.

Nokkru seinna sýndu yngri nemendur einnig hvað í þeim bjó. Nemendur í 4. bekk héldu sína eigin litlu upplestrarkeppni í sal Nesskóla. Þar lásu krakkarnir upp af miklu öryggi fyrir foreldra sína, sem fylgdust stoltir og hrærðir með úr salnum. Þessi stund var þó ekki aðeins hátíðleg heldur einnig dálítið ljúfsár. Í tengslum við keppnina kvöddu nemendurnir nefnilega ástkæran umsjónarkennara og stuðningsfulltrúa sinn aem fylgt hafa bekknum frá upphafi. Við næstu skólabyrjun færast þau upp í 5. bekk þar sem nýr kennari mun taka á móti þeim og leiða þau áfram á miðstigi.

Alþjóðlegt samstarf setti einnig einstaklega skemmtilegan og dýrmætan svip á skólastarfið á þessari vorönn. Skólinn fékk til sín svokallaða skuggakennara frá ólíkum löndum, nánar til tekið frá Belgíu, Frakklandi, Slóveníu og Lettlandi. Þessi heimsókn færði skólasamfélaginu dýrmæta innsýn í aðrar menningarflóru og kennsluhætti. Ekki nóg með það, heldur fékk skólinn einnig skemmtilega nemendaheimsókn alla leið frá Lettlandi og Katalóníu sem hleypti miklu lífi í skólann og skapaði dýrmæt vináttubönd þvert á landamæri í 10. bekk.



Þegar nær dró vori færðist skólastarfið mikið út og ferðalög spiluðu þar stórt hlutverk. Skipulögð var frábær fjallaferð þar sem nemendur á mið- og unglingastigi skelltu sér í brekkurnar og nutu útiverunnar saman. Síðar fór yngsta stigið í ógleymanlega og skemmtilega vorferð yfir til Fáskrúðsfjarðar þar sem þau kíktu á Franska safnið og léku sér á leikvellinu í skrúðgarðinum. Enn fremur lögðu nemendur í 7. til 10. bekk leið sína yfir á Fáskrúðsfjörð til þess að taka þátt í sameiginlegum og fjörugum íþróttadegi. Sá dagur gekk gríðarlega vel; allir lögðu sig fram, sýndu flotta liðsheild og hreyfigleðin smitaði út frá sér. Þessum frábæra degi lauk svo á eftirminnilegan hátt með skemmtilegum dansleik í samkomuhúsinu Skrúð þar sem krakkarnir sýndu sínar bestu hreyfingar á dansgólfinu.


Á lokametrum annarinnar hélt fjörið áfram af fullum krafti. Nemendur í 9. bekk héldu í sína árlegu og eftirvæntingarfullu bekkjarferð norður yfir heiðar þar sem þau skemmta sér konunglega, efla hópinn og safna dýrmætum minningum fyrir lífstíð. Við lok skólaársins hlakka allir mikið til þeirra skemmtilegu húllumhæ daga sem fram fara í síðustu viku skólans, en þeir dagar setja oft punktinn yfir i-ið á þessari frábæru önn.



