Leyfi nemenda

Beiðni um leyfi nemanda ef um þrjá eða fleiri daga er að ræða

Brýnt er að veikindi séu tilkynnt af foreldrum til skólans eins fljótt og hægt er og eru foreldrar beðnir um að láta vita fyrir hvern dag sem nemandinn er veikur. Hægt er að hringja í síma skólans 477-1124 eða tilkynna veikindin á mentor.is.  Hringt er heim ef nemendur eru ekki mættir kl. 08:15.

Alltaf þarf að sækja sérstaklega um leyfi ef nemandi þarf frí frá skóla.  Hægt um sækja um staka tíma og 2 daga leyfi inn á Mentor (ATH þegar sótt er um leyfi á mentor breytist það sjálfkrafa í veikindi, einnig ef valdir eru stakir tímar allan daginn). 

Skv. 15. gr. grunnskólalaga frá 2008 er öll röskun á námi sem hlýst af leyfum frá skóla á ábyrgð foreldra eða forráðamanna. Þar segir um tímabundna undanþágu barns frá skólagöngu: „Forráðamaður skal sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi á meðan á undanþágu stendur.“ Nauðsynlegt er að hafa samráð við umsjónarkennara varðandi hverju þarf að sinna í náminu.

Umsókn um leyfir - rafrænt