Nesskóli hefur með stolti hlotið 200.000 kr. styrk frá Forritarar framtíðarinnar – styrktarsjóði á vegum Forritarar.is, sem hefur það að markmiði að styðja við forritunarmenntun barna og ungmenna um allt land.
Með þessum styrk mun Nesskóli fjárfesta í Artie 3000, forritanlegum róbót sem nemendur stýra með því að skrifa einfaldan kóða – og róbótinn svarar með því að teikna myndir! Með því að tengja listsköpun og forritun ætlum við að styrkja skapandi hugsun, lausnaleit og tæknilæsi á nýstárlegan og aðgengilegan hátt.
Auk þess verður keypt block-based coding student activity set for Scratch, sem býður upp á skjálausa forritun fyrir yngri nemendur. Þetta set nýtist einkar vel til að kynna grunnhugtök forritunar á snertanlegan og leikrænan hátt, án þess að nota snjalltæki eða tölvur.
Við hjá Nesskóla erum afar þakklát Forriturum framtíðarinnar fyrir þennan veglega stuðning og hlökkum til að bjóða nemendum upp á ný tækifæri til að skapa, kóða og læra í gegnum leik og list.