Fundur Heimilis og skóla FRESTAÐ til 3. maí

Fundur Heimilis og skóla við foreldra sem vera átti fimmtudaginn 13. apríl hefur verið frestað til 3. maí 2023, en fundurinn verður í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.

Mikilvægt er að skrá sig á fundinn með netfangi fyrir þá sem ætla að horfa í streymi. Allir sem hyggjast taka þátt í fundinum eru beðnir um að skrá sig.
Hér er skráningarformið fyrir foreldra í grunnskólum, leikskólum, framhaldsskóla og frístundastarfi sem tilheyra Fjarðabyggð: https://forms.gle/Xt5q8nigRtvVpp1Y9