Könnun meðal foreldra og forráðamanna um mögulega breytingu á upphafi skóladegi – úr kl. 8:10 í kl. 8:30 – er nú lokið. Þátttaka var mjög góð og við þökkum öllum sem tóku þátt.
Niðurstöður könnunar voru eftirfarandi:
Ég styð breytingu á upphafi skóladags: 99 atkvæði
Ég vil ekki breyta upphafi skóladags: 100 atkvæði
Ég hef enga skoðun: 15 atkvæði
Tillagan um breytingu var því hafnað með einu atkvæði, og engar breytingar verða gerðar. Skóladagur heldur áfram að hefjast kl. 8:10 næsta skólaár.
Við viljum jafnframt þakka kærlega fyrir gott samstarf á skólaárinu. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með framförum og vexti nemenda.
Skrifstofa skólans er nú lokuð vegna sumarleyfis og opnar aftur 11. ágúst.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs og ánægjulegs sumars!
Starfsfólk Nesskóla