Við í Nesskóla þurftum að laga okkur að breyttu landslagi vegna Covi19 og halda öskudaginn með breyttu sniði.
Haft var samband við fyrirtækin í bænum og voru allir til í að taka þátt í því að koma namminu á staðinn til okkar.
Stigin ákváðu svo að gera ýmislegt skemmtilegt með krökkunum í tilefni dagsins og gekk það framar öllum vonum!
Yngsta stigið fór niður á leikskóla og sungu nokkur lög þar og vinkuðu litlu krökkunum. Síðan var farið upp á HSA og sungin nokkur lög þar. Þá var farið og spriklað í íþróttahúsinu, farið í Ásadans, spila og boltaleiki þegar í skólann var komið var farið í osmo, just dance og horft á mynd. Krakkarnir fengu að borða popp og drekka safa með en allt nammið fer heim og verður vonandi ekki borðað fyrr en um helgi Til baka
Skólavegur 740 Neskaupstað
Sími á skrifstofu: 4771124 Símanúmer Vinasels: 4709114 Netföng: ritarinesskola@skolar.fjardabyggd.is karen@skolar.fjardabyggd.is vinasel@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:30 - 13:00 föstudaga |