Sjöundi bekkur í Nesskóla hlýtur viðurkenningu

Bebras áskorunin er alþjóðlegt verkefni sem felst í að auka áhuga á upplýsingatækni og efla rökhugsun og tölvufærni. meðal nemenda á öllum skólastigum.

Þetta er ein fjölmennasta áskorun sem notuð er til kennslu í upplýsingatækni og var hún keyrð í fyrsta sinn á Íslandi í nóvember 2015 og er Ský í forsvari fyrir verkefnið á Íslandi.


Í áskoruninni leysa þátttakendur skemmtilegar þrautir sem byggja á hugsunarhætti forritunar við úrlausn þeirra. Þrautirnar eru hugsaðar fyrir 6 - 18 ára og skipt niður eftir aldri.

 

7. bekkur stóð sig með glæsibrag og hlaut silfur viðurkenningu.

Við óskum þeim innilega til hamingju og kennaranum þeirra Viktoríu Gilsdóttur