Vetrarfrí og starfsdagur

Minnum á að fimmtudaginn 27. október og föstudaginn 28. október er vetrarfrí í skólanum. Í framhaldinu, mánudaginn 31. október, er starfsdagur og þá einnig vetrarfrí hjá nemendum. Engin kennsla er þessa daga og Vinaselið lokað. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 1. nóvember.
Einnig langar okkur að minna á að samverustundir barna og foreldra eru þeim mikilvægar. Því hvetjum við foreldra til að halda truflandi áreitum úr umhverfinu (t.d. snjalltækja) í lágmarki og njóta samverunnar saman.

Njótið helgarinnar!