Matseðill

Frá haustinu 2017 hefur verið sameiginlegur matseðill fyrir alla leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn koma til með að hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag. Við samsetningu matseðlana er farið eftir ráðleggingum frá landlæknisembættinu sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar. Hér fyrir neðan er hægt að sjá matseðla fyrir hverja viku.

  • Fiskur eða fiskréttir tvisvar í viku. Líka feitur fiskur.
  • Kjöt eða kjötréttir tvisvar í viku.
  • Súpur, skyr, hrísgrjónagrautur eða léttur réttur einu sinni í viku.
  • Grænmeti, salat og ávextir í boði alla daga.
  • Gróft brauð (með háu hlutfalli trefja).
  • Grænmetisréttir, tvisvar sinnum í mánuði í stað kjötrétta.

 


29. apríl - Soðinn fiskur með karrýsósu og hrísgrjónum.

30. apríl - Svínahamborgarahryggur með brúnuðum kartöflum, sósu og rauðkáli.

1. maí - Baráttudagur verkalýðsins.

2. maí - Hakkbollur með kartöflumús, brúnni sósu og grænum baunum.

3. maí - Makkarónugrautur með kanilsykri og smurðu brauði.


 

6. maí - Tortilla með steiktu hakki, salsa, rifnum osti ásamt fersku grænmeti.

7. maí - Gratineraður fiskur með hrísgrjónum, blönduðu grænmeti og sinnepssósu.

8. maí - Kjúklingur í raspi með kaldri hunangs sinnepssósu og kartöflubátum.

9. maí - Uppstigningardagur.

10. maí - Gúllassúpa með brauðbollu.


 

13. maí - Soðinn fiskur með kartöflum, tómatsósu, rúgbrauði og smjöri.

14. maí - Grænmetisbollur með hrísgrjónum, salati og súrsætri sósu.

15. maí - Pizzaveisla.

16. maí - Snitsel með steiktum kartöflum og sósu.

17. maí - Hrísgrjónagrautur með kanilsykri og slátri.


 

20. maí - Annar í Hvítasunnu.

21. maí - Pasta með kjötbollum, rauðri sósu og hvítlauksbrauði.

22. maí - Slátur með kartöflum og jafningi.

23. maí - Plokkfiskur með rúgbrauði og smjöri.

24. maí - Jarðaberjaskyr með rjómablandi, bönunum og múslí.